SVG (stendur fyrir Scalable Vector Graphics eða „stækkanlegar vigurmyndir“) er myndasnið fyrir vigurmyndir (bæði stillimyndir og hreyfimyndir) sem notast við XML-staðalinn. SVG er opinn staðall þróaður af W3C frá árinu 1999. Þar sem SVG-skjöl eru XML-skjöl er hægt að breyta þeim með hvaða XML-ritli sem er eða venjulegum textaritli en algengast er að notast við teikniforrit sem styðja SVG-sniðið á borð við Adobe Illustrator og Inkscape. Hægt er að skrifta SVG-myndir með ECMAScript til að gera þær gagnvirkar og hreyfa þær til.