RIX er skiptistöð íslenskra internetþjónustuaðila, þar sem þeir geta skiptst á IP umferð sín á milli og komið þannig í veg fyrir að innanlandsumferð flæði um útlandasambönd.
RIX er hlutlaus tengipunktur þar sem aðilar sem uppfylla ákveðin skilyrði tengjast og geta með gagnkvæmum samningum skipst á umferð við aðra RIX aðila. Aðilar tengjast á 1Gbs/10Gbs og sjá sjálfir um að tengjast RIX.
RIX er aðili að Evrópusamtökum Nettengipunkta, Euro-IX.
|
|